Sigurður Brynjar
Sigurður er forstjóri BYKO og hefur yfir 20 ára reynslu af rekstri og stjórnun fyrirtækja. Hann hefur leitt stefnumótun og uppbyggingu umfangsmikillar starfsemi með áherslu á rekstrarhagkvæmni, vörustjórnun og þróun þjónustu. Undir hans stjórn hefur BYKO verið í fyrsta sæti hjá Íslensku ánægjuvoginni níu ár í röð, ásamt fjölda annarra viðurkenninga sem félagið hefur fengið.
ferill
-

Ábyrgð á heildarrekstri félagsins, stefnumótun og áframhaldandi þróun starfseminnar.
Forstjóri – BYKOFrá 2014Forstjóri – BYKOFrá 2014
Ábyrgð á heildarrekstri félagsins, stefnumótun og áframhaldandi þróun starfseminnar.
-
Framkvæmdastjóri vörustjórnunarsviðs – BYKO2012–2014Framkvæmdastjóri vörustjórnunarsviðs – BYKO2012–2014
-
Framkvæmdastjóri – Bakkinn vöruhótel ehf.2008–2012Framkvæmdastjóri – Bakkinn vöruhótel ehf.2008–2012
-
Situr í framkvæmdastjórn BYKOFrá 2008Situr í framkvæmdastjórn BYKOFrá 2008
-
Forstöðumaður vöruhúsa – BYKO2004–2007Forstöðumaður vöruhúsa – BYKO2004–2007
-

Áhersla á birgðastjórnun og rekstrarhagkvæmni.
Verkefnastjóri á innkaupasviði – BYKO2000–2004Verkefnastjóri á innkaupasviði – BYKO2000–2004
Áhersla á birgðastjórnun og rekstrarhagkvæmni.
-
Tollvörður – Tollgæslan í Reykjavík1994–1997Tollvörður – Tollgæslan í Reykjavík1994–1997

Menntun
✦
Meistarapróf í húsasmíði, 2026
✦
Sveinspróf í húsasmíði, 2024
✦
Húsasmíði, Fjölbrautaskólinn í Breiðholti, 2021–2024
✦
Markþjálfun, Evolvia, 2015–2016
✦
B.Sc. í viðskiptafræði, með áherslu á vörustjórnun (logistics), 1999–2000
✦
Iðnrekstrarfræði, 1997–1999

Árangursrík verkefni og stefnumarkandi framlag
- Stefnumótun fyrir BYKO í samstarfi við danska ráðgjafafyrirtækið Ogilvy undir yfirskriftinni „Að skapa bestu heildarupplifun viðskiptavina“.
- Mótun og innleiðing sjálfbærnistefnu BYKO 2018 undir kjörorðinu „Vistvæn saman“.
- Uppbygging og hönnun Bakkans Vöruhótels ehf. sem er í eigu Norvíkur. Umsjón með verkefninu frá hugmynd til rekstrar. Gerð viðskiptaáætlunar við stofnun ásamt hönnun á húsi, vöruhúsakerfi, innra skipulagi og röðun vara í húsi.
- Ný verslun BYKO Breidd: verkefnastjórn með ábyrgð á vöruflæði, uppsetningu, niðurröðun vara í verslun ásamt endarekkum og herferðarvörum.
- Ný verðstefna BYKO: verkefnastjórn sem fólst í að móta og skilgreina verkefnið ásamt því að útlista verkþætti niður á svið og sjá um eftirfylgni.
- Sjálfbærniásinn 2 ár í röð
- Íslenska ánægjuvogin 9 ár í röð
- Umhverfisverðlaun - Kuðungurinn
- 4DX innleiðing stefnu með þeirri nálgun
Stefnumarkandi framlag
- Stefnumótun og framkvæmd stefnu
- Forysta og menning
- Vörustjórnun og stjórnun aðfangakeðju
- Verslunarrekstur B2B og B2c
Stjórnunar- og leiðtoganám
- Frankilin Covey
- The 7 Habits of Highly Effective Managers
- The 7 Habits of Highly Effective People
- The 5 Choices to Extraordinary Productivity
- The 4 Essential Roles of Leadership
- Stjórnendaþjálfun hjá Capacent.
- Námskeið fyrir lykilstjórnendur („Stokkið til framtíðar“)
○ Meðal annars stjórnendamat, kostnaðarstjórnun, vinnustaðamenning og tímastjórnun.
Stjórnarseta
- Stjórnarseta í Vörustjórnunarfélagi Íslands.
- Stjórnarseta í Bricoalliance
- Framtíðarfræði, faghópur inn Stjórnvísi
Fjölskylda og áhugamál
Stærsta og mikilvægasta hlutverkið mitt er að vera eiginmaður, faðir fjögurra stráka, sem eru á aldrinum 14 til 31 árs, og afi tveggja yndislegra barnabarna. Ég hef verið svo lánsamur að eiga í ástríku hjónabandi í 32 ár og eiginkona mín hefur alla tíð verið mér mikill styrkur og traustur félagi í gegnum lífið.
Fjölskyldan er minn fasti punktur og ég er sérstaklega stoltur af þeim sterku og heilbrigðu samskiptum sem við eigum. Við stöndum saman, hlustum hvert á annað, styðjum og hvetjum og tölum hreinskilnislega saman. Um leið gefum við hvert öðru svigrúm til að vera við sjálf, takast á við eigin áskoranir og fara okkar eigin leiðir. Þessi nálægð, traust og gagnkvæma virðing eru meðal þeirra gilda sem skipta mig mestu máli – og hafa óhjákvæmilega mótað hvernig ég nálgast fólk, samskipti og verkefni utan fjölskyldunnar líka.
Ég er þakklátur fyrir að búa við góða heilsu og reyni að nýta hana vel. Mér líður best þegar ég er á hreyfingu eða með eitthvað fyrir stafni. Á sumrin er ég gjarnan á golfvellinum, uppi á fjöllum, á fjallahjólinu eða við árbakkann með veiðistöngina. Svo finnst mér fátt skemmtilegra en að bretta upp ermarnar og smíða eitthvað. Kannski er rauði þráðurinn einfaldlega sá að mér finnst gaman að prófa, skapa og leika mér.
Ég hef alltaf haft þá trú að það sé óþarfi að mikla hlutina of mikið fyrir sér. Ég set mér markmið, legg af stað og tek svo á því sem kemur upp á leiðinni. Maður þarf ekki alltaf að hafa öll svörin áður en farið er af stað – oft lærir maður mest á því að byrja, prófa sig áfram og finna lausnirnar á leiðinni.


Mín sýn
„Ég hef áratugalanga reynslu af rekstri, stefnumótun og stjórnun og hef starfað við fjölbreytt stjórnunarstörf í nær 25 ár. Sem forstjóri BYKO undanfarin 12 ár hef ég öðlast víðtæka þekkingu á öllum helstu þáttum fyrirtækjarekstrar; þar á meðal stefnumótun, fjármálum, skipulagsbreytingum, mannauðsmálum og uppbyggingu á öflugum teymum. Sú reynsla hefur veitt mér yfirgripsmikla og sterka heildarsýn og ég hef öðlast góða færni í að greina tækifæri, meta áhættu og taka upplýstar ákvarðanir.
Ég er þeirrar skoðunar að árangur í rekstri og stjórnarstörfum byggist ekki eingöngu á tölum og ferlum, heldur ekki síður á fólki, trausti og góðri samvinnu. Í mínum störfum hef ég lagt mikla áherslu á leiðtogahæfni, þar sem skýr framtíðarsýn, heiðarleiki og gagnkvæmt traust skapa grundvöll fyrir árangur til lengri tíma. Ég á mjög auðvelt með að vinna með ólíkum hópi fólks, virkja hæfileika og byggja upp sterka liðsheild sem nær sameiginlegu markmiði. Sú reynsla hefur nýst mér vel í krefjandi aðstæðum þar sem órói og óvissa ríkir og yfirvegun er það sem gildir og leiðir til góðra ákvarðana.
Ég er stefnumótandi og árangursdrifinn að eðlisfari, forvitinn og áhugasamur um að læra og þróast. Ég trúi því að skýr sýn á eftirsóknarverða framtíð, með fagmennsku og mannleg gildi að leiðarljósi, sé lykill að sjálfbærum árangri. Í störfum mínum hef ég ávallt lagt áherslu á að skapa menningu þar sem metnaður, ábyrgð, gleði og samvinna fara saman við virðingu og hvatningu.
Sú blanda af menntun og reynslu sem ég bý yfir nýtist að mínu mati vel í stjórnarstörfum þar sem þörf er á heildarsýn, stefnumótandi hugsun, ábyrgð og mannlegum skilningi.
Ég tel mig geta komið með verðmætt framlag að stjórnarborðinu, þar sem jafnvægi milli faglegra krafna, skýrrar stefnu og mannlegra þátta er lykilforsenda að góðri niðurstöðu.“
Samantekt
Reyndur, lausnamiðaður og stefnumarkandi leiðtogi með yfir 20 ára reynslu af stefnumótun, rekstri og uppbyggingu fyrirtækja. Hefur um árabil leitt umfangsmikla starfsemi með áherslu á verslunarrekstur, rekstrarhagkvæmni, þjónustu og vöxt.
Býr yfir víðtækri þekkingu á verslunarrekstri á báðum lykilmörkuðum (B2B / B2C), vörustjórnun og aðfangakeðjunni ásamt mikilli hæfni í að leiða breytingar og þróa skipulag til framtíðar. Leggur áherslu á árangursdrifna nálgun, skýra markmiðasetningu, leiðtogahæfni og öflug og traust mannleg samskipti sem draga fram það besta í hverjum og einum.

Í fréttum
Þjóðmál - stærsta áskorunin er núna!
Rætt er við Sigurð Pálsson, forstjóra BYKO, sem hefur starfað hjá fyrirtækinu í 26 ár. Sigurður gefur innsýn í rekstur þessa rótgróna félags, fer yfir afkomuna og útskýrir hvernig hægt er að spá fyrir um sölu á árstíðabundnum vörum fyrir komandi sumar.
Ætlaði bara að læra húsasmíði en endaði sem húsasmíðameistari
Sigurður Brynjar Pálsson, forstjóri BYKO, lauk í vor meistaraprófi í húsasmíði, sem kemur sér vel vegna þess að hann er sjálfur að reisa sér hús
BYKO boðar verðstöðvun í baráttu gegn verðbólgu
Sigurður Brynjar Pálsson forstjóri Byko um verðlagsmál og verðbólgu.
Hann gerir allt…. nema það sem honum finnst leiðinlegt
Sigurður Pálsson forstjóri BYKO segir að í heimilisverkum komi Meyjan oft fram í honum og þá eigi hann það jafnvel til að ganga of langt.
Veltan aukist um 40% frá 2020
Rekstrartekjur Byko námu 29,5 milljörðum króna á árinu 2022 og hafa aukist um 42% frá árinu 2020.
Minna tal, meiri framkvæmdir
Sigurður Brynjar Pálsson, forstjóri BYKO, segir þessi staða sem við erum í núna var alveg fyrirsjáanleg og átti ekki að koma neinum á óvart.“.
Fer á kassann ef þarf
Sigurður Brynjar Pálsson tók við sem forstjóri BYKO sumarið 2014, eftir að hafa klifið upp nánast allan metorðastigann hjá fyrirtækinu.
Erindi og viðtöl
Umsagnir

I had the pleasure of meeting Sigurdur Palsson 12 years ago when he took over the position of CEO at BYKO, lceland's leading home improvement retail company in 2014 with a total of 11 stores.
Over these 12 years, I have met Sigurdur several times and I have always been most impressed with the enthusiasm and vision he has for our industry, and especially his dedication to offer his BYKO customers the very best possible service.
Working together with the consultancy company Ogilvy, with the aim to create the very best overall shopping experience, it came as no surprise to learn that BYKO has been voted the No1 retail company in the lcelandic Satisfaction lndex for the past 9 consecutive years!
Sigurdur is natural leader; he is articulate, he is an excellent communicator, and he is highly respected by his team members, his customers and his suppliers. His English is perfect!
In the end, it is the results that count, and BYKO has increased sales by 42% since 2020. Considering the overall economic climate this is a most remarkable achievement.
ln my opinion, Sigurdur Pilsson is an outstanding CEO of a retail company, and I have no reservation in highly recommending him to any retail company that is looking for a new direction.
-John W. Herbert General Secretary EDRA - The European DIY Retail Association GHIN - The Global Home lmprovement Network EDRA

„Siggi P. er einlægur og innblásinn leiðtogi sem ber djúpa virðingu fyrir fólki og hefur einstakt lag á að laða fram það besta í hverjum og einum. Undir hans forystu hefur náðst framúrskarandi árangur. Hann leiðir með skýrri sýn, setur markið hátt og trúir því að fjölbreytileiki og góður vinnustaður séu lykillinn að varanlegum árangri.
Með hlýju sinni, heilindum og sterkum leiðtogahæfileikum er hann afar verðugur og eftirsóknarverður kostur til stjórnarsetu.“
– Gunnhildur Arnardóttir, framkvæmdastjóri Stjórnvísi

"I’ve truly enjoyed working with you and have always admired your ability to combine strong vision with a very practical, hands-on approach that brings clarity and direction to those around you. You’re not afraid to make bold decisions when needed and navigate change with confidence, which is a rare and valuable quality. On top of that, I’ve genuinely appreciated working with you on a personal level as well. I would consider myself lucky to have the opportunity to work with you again."
-Emma J. E. Petersson, Client Service Director & Head of Consulting OGILVY
"Í mínu starfi sem stjórnendaþjálfari hef ég unnið með fjölbreyttum leiðtogum og fylgst með því hvað raunverulega aðgreinir þá sem ná bæði árangri og byggja upp sterka menningu. Í því ljósi hefur verið sérstaklega áhugavert að fylgjast með
Sigga P. Hann býr yfir sjaldgæfu jafnvægi – að vera bæði sterkur á mannlegu nótunum og skýr í rekstri. Hann nær að skapa traust og tengingu á sama tíma og hann setur skýra stefnu, tekur ákvarðanir og heldur fókus á árangri. Í samstarfi okkar hef ég séð hvernig hann byggir upp teymi þar sem fólk vex, tekur ábyrgð og leggur sitt af mörkum af heilindum."
-Guðrún Snorradóttir, stjórnendaþjálfi, www.gudrunsnorra.com
"Sigurður er framúrskarandi fagmaður í stjórnun og rekstri. Hann býr yfir sjaldgæfri blöndu af skýrri stefnumarkandi sýn, skilningi á lykilatriðum rekstrar og einlægri virðingu fyrir fólki og aðstæðum. Færni hans við að leiða stór umbreytingarverkefni – bæði í rótgrónu umhverfi og á tímum straumhvarfa - endurspeglar kjark hans, áræðni, aðlögunarfærni og stefnufestu. Sigurður leggur ríka áherslu á að skilja þarfir og væntingar hagaðila og leitast markvisst við að fara fram úr þeim. Hann er óhræddur við nýjungar, heldur skýrum fókus á lykilárangursmælikvarða og tryggir að framgangur fólks og verkefna byggi á traustum grunni.
Með vandaðri forystu hefur Sigurði tekist að byggja árangursdrifna menningu og farsælan rekstur, sem einkennist af ábyrgð, samstarfi og stöðugri framþróun."
-Guðrún Högnadóttir, Managing Partner, Framkvæmdastjóri Franklin Covey
Hafa samband
Takk fyrir að hafa samband.
Villa kom upp við sendingu. Vinsamlegast reyndu aftur.








